Me
Fréttir
22.10.2006 18:49:14 / vallih

Nýtt blogg:

Erla  mágkona er komin með nýtt blogg, ég ætla að stela hennari hugmynd og hef ákveðið að prófa nýtt blogg, ástæðan er að mig er lengi búið að langa að setja inn myndir á bloggið mitt, en mér hefur aldrei tekist það á þessari síðu. Það er hins vegar boðið upp á það núna, það er samt ótrúlegt vesen. Það er þess vegna ágætt (ég vona það a.m.k.) að breyta til.

Nýja bloggið mitt er: www.nannag.bloggar.is    verið dugleg að kíkja það og kíkið líka á myndirnar þar. Sjáumst þar :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.10.2006 10:42:57 / vallih

Here I come

Well, well

Ég pantaði áðan ferðina heim til Íslands um jólin, ég fer heim laugardaginn 9.desember!! Það er bara eftir rúmar 7 vikur!!

Ég á orðið í smá erfiðleikum með að einbeita mér í skólanum þessa dagana, því hugurinn er alls ekki við námsefnið. Ég er orðin svo spennt að koma heim um jólin, ég er líka orðin spennt fyrir næstu önn í Skotlandi. Ég verð samt að taka mig á og einbeita mér að náminu og njóta þess að vera hér, því ég hef það virkilega gott hérna.

Ég er ekkert smá þakklát fyrir internetið og þá sérstaklega webcameruna, því það minnkar heimþrána og fjarlægðina við Ísland, það er ómetanlegt að fá að sjá hvernig litlu sætu (stundum óþekku) frændsystkini mín vaxa og dafna. Ég var svo glöð um daginn að fá að sjá Freydísi í webcaminu, hún dafnar svo ótrúlega vel og hún er svo gott barn. Hún á örugglega eftir að verða mikill spekingur þegar hún verður eldri, bara eins og stóra systir sín.

Jæja, ég hef ekki meira tíma í bili (bara eins og í gær) en það er víst kennsla núna, sem ég þarf að taka þátt í.

Gangi ykkur vel.


» 5 hafa sagt sína skoðun

17.10.2006 12:40:53 / vallih

Kjúklingur

Ég kíkti við á Bispebjerg hospital í morgun og fékk tíma hjá lækni til þess að athuga með hendina. Þetta var allt gert að ráðum pabba, en mér var ekki farið að lítast á blikuna í gær þegar mér fannst ég hafa skánað lítið í hendinni. Ég er líka bara fúl að þetta skildi gerast og að þetta taki svona langan tíma að lagast. Ég má samt ekki vera vanþakklát, það getur svo margt verið að, að svona lítið óhapp er ekki neitt til að kvarta yfir. Það er samt betra að athuga þetta með hendina, better to be safe than sorry, læknirinn komst að þeirra niðurstöðu að ég væri ekki brotin, hann tók reyndar ekki neinar röntgenmyndir, þannig að ég verð að treysta honum.Ég ætla samt að fara aftur eftir viku ef þetta hefur lítið lagast, því eins og pabbi sagði, getur þetta tekið langan tíma að lagast. Það versta er að ég get ekki tekið brjóst eða bak æfingar í ræktinni, það fer dál. í taugarnar á mér, en eins og ég sagði má ég ekki kvarta, því ég er hraust að öðru leyti (7-9-13). Well, nóg um þessa sjúkrasögu.....

Það var gaman að kíkja í afmæli, fyrir akkúrat viku, afmælisbarnið var með bakkelsi og kakó handa, ekkert smá nice.

Ég bauð síðan töffurunum 3 úr hópnum mínum heim í hádegismat sl.föstudag, það heppnaðist mjög vel. Þeir fóru saddir og sáttir út (vona það a.m.k.), mér fannst þetta vera eina tækifærið til að bjóða einhverjum heim, því Ásta skrapp til Íslands og Valli var allan daginn í skólanum. Það eina var að gleymdi að taka mynd af þeim! Ég fattaði það þegar þeir voru farnir!!

Sorry, ég hef ekki tíma til að skrifa meira í augnablikinu, ég skrifa meira í lok vikunnar.

Gangi ykkur öllum vel og hafið það gott :D


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.10.2006 09:35:45 / vallih

Nýjar fréttir

Ég var að fá að upplýsingar um það hvenær prófið í des. er, en það er 6-7 desember!!! Þetta eru æðislegar fréttir, ég býst því við að vera í tæplega 2 mánaða jólafríi. Ég reikna með að ég komi heim ca.9-10.des. því ég þarf að ganga frá dótinu mínu sem ég á hérna og koma því fyrir í geymslu á meðan ég er í Skotlandi á næstu önn.

Ég er annars orðin virkilega spennt fyrir næstu önn í Skotlandi, það er svo margt áhugvert sem ég get valið um í skólanum þar, síðan er víst allt umhverfið mjög heillandi.

Takk kærlega fyrir hafa samband við mig, Auður og Þormóður, mér þykir mjög vænt um það.

Gangi ykkur öllum vel og hafið það gott :D


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.10.2006 12:25:03 / vallih

Helló

Jæja, þá er frábær helgi að baki. Við héldum partý á föstudaginn sem heppnaðist mjög vel. Ég lenti í smá óhappi að vísu, en það er allt í goody núna.

Á laugardaginn hitti ég Dísu á kaffihúsi og við töluðum nánast út í eitt, hún er virkilega skemmtileg stelpa. Síðan fór ég í bíó um kvöldið. Þetta var  allt virkilega gaman.

Á morgun fer ég í afmæli og um helgina út að borða og það er nóg að gera í skólanum. Þannig að lífið er ansi skemmtilegt um þessar mundir, en það er alltaf upp og niður hjá mér, eins og flestum öðrum líka.

Síðan bara fyrir þá sem greinilega ekki vita, þá virkar skype í báðar áttir ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.10.2006 06:35:42 / vallih

Október

Jæja, nú er október genginn í garð og það er svo sannarlega nóg um að vera framundan.

Steinunn systir er komin og farin, það var algjör vítamínsprauta fyrir mig að fá hana í heimsókn til mín. Við kíktum á cozy og góðan stað á Nyhavn á laugardagskvöldið. Maður er svo sannarlega heppinn að eiga góða að, maður verður að gera sér grein fyrir því og njóta þess.

Hafið það gott allir og gangi ykkur vel :D


» 5 hafa sagt sína skoðun

26.09.2006 06:34:59 / vallih

4 ára

Til hamingju elsku Kristín mín með 4 ára afmælið, þú ert orðin svo stór stelpa prinsessan mín. Ég vona að það hafi verið gaman hjá þér í afmælinu sl. sunnudag. Ég er búin að kaupa afmælisgjöf handa þér, mamma þín kemur með hana til þín á sunnudaginn. Það verður gaman að sjá mömmu þína á morgun.

Hafið það gott allir og gangi ykkur vel :D


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.09.2006 15:48:25 / vallih

1,2 og 3

Þessa dagana er nóg að gera í skólanum, því það er kynning hjá okkur á mánudaginn. Skólinn er því nr. 1,2 og 3 hjá mér alla daga, ég reyni samt að byrja daginn á því að fara í ræktina, það er samt stundum erfitt að vakna þegar það er orðið dimmt svo snemma á morgnana, en það var ekki þannig í vor. Mér tekst samt alltaf einhvern veginn að koma mér á fætur :lol:

Það er annars bara allt gott að frétta, haustið er að fara að skella á, samt er spáð góðu veðri um helgina eða a.m.k á föstudaginn. Steinunn fer síðan að koma til mín, en hún heldur auðvitað upp á afmælið hennar Kristínar prinsessu fyrst, Kristín á afmæli 26. september og verður þá 4 ára (váááá, hvað tíminn er fljótur að líða).

Ég hef kannski ekki tíma til að skrifa hérna inn á næstunni, þannig að meiri fréttir koma í næstu viku (það er samt ekkert að frétta).

Hafið það gott allir :D


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.09.2006 13:25:35 / vallih

Sorry

Ég biðst afsökunar á því á hafa ekki skrifað neinar nýjar fréttir hérna inn, ég hef bara ekki gefið mér tíma til þess.

Ferðin til Íslands var æðisleg, takk pabbi og mamma og allir aðrir fyrir mig. Ég fékk að halda á og kynnast nýju frænku minni sem er hápunktur ferðarinnar.

Síðan ég kom út hef ég gjörsamlega sökkt mér í vinnu, sem þýðir að ég hef verið mjög upptekin í skólanum. Þessa dagana er nóg að gera og allt frekar skemmtilegt, en ég veit að það er upp og niður í skólanum, þannig að ég ætla að njóta þess þegar það er gaman og ég nenni að vera lengi að vinna.

Þetta verður ekki lengra hjá mér að þessu sinni þar sem ég er upptekin í skólanum.

Hafið það gott allir :D


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.09.2006 14:22:32 / vallih

Smá fréttir

Laugardagskvöldið var æðislegt, "kvöldið" byrjaði á því að ég hitti Lindu á Aðaljárnbrautarstöðinni kl.4, þaðan tókum við lest til Hróarskeldu um kl.4:30. Það kom mér á óvart hversu stutt ferðalag þetta var, eða það tók okkur aðeins rúmlega 20 mín. að ferðast þarna á milli. Á Hróarskeldu tók Karólína á móti okkur, þaðan þurftum við síðan að taka strætó, sem tók aftur ca.20 mín. Þetta var pínu ferðalag, en samt í góðu lagi, sérstaklega þegar ég var í góðum félagsskap. Við fengum alveg dýrindismáltíð og auðvitað var nóg af góðu víni líka í boði, en ég þarf ekki að segja neinum að áfengi er sérstaklega ódýrt hérna í DK, a.m.k. miðað við Ísland.

Kvöldið leið alltof hratt, þar sem hún býr úti í "sveit" þá þurftum við að passa okkur á að taka síðasta strætóinn frá henni, því annars hefðum við þurft að gista hjá henni eða borga rándýran taxa. Við auðvitað náðum síðasta strætónum og ferðin öll gekk vel heim, og þegar ég var komin upp í bólið um nóttina var kl.ca.1:30. Karólína og Linda eru alveg einstaklega góðar og skemmtilegar "stelpur" (þetta var fyrir þig mamma) og ég er ekkert smá heppin að þekkja slíkar eðalmanneskjur.

Þið getið kíkt á heimasíðu barnanna hennar Karólínu og séð myndir af henni, börnunum (hún á 4 börn!) og húsinu hennar hér í DK. Mér fannst húsið ekkert smá cozy, það er ekta skandinavískt múrsteinahús, það minnti mig dál. á mína gömlu daga í Svíþjóð. http://brimir.barnaland.is/

Síðan smá fréttir, en það kom tilboð á Iceland express á flugi heim, og ég náði að panta ferð heim um helgina. Hvor leiðin fyrir sig kostaði aðeins 2990,-, ég get því bara ekki sleppt því að fara heim. Ég hlakka ekkert smá til að hitta alla aftur og auðvitað að fá að halda á og knúsa nýju frænku mína sem ég hef ekki fengið að hitta ennþá. Ég kem heim á föstudeginum en fer aftur tilbaka á mánudaginn (sorry, bara stutt helgarferð).

Ef þið viljið að ég kaupi eitthvað sem ég á koma með heim, hringið endilega í mig á skype. Stundum virkar netið þó ekki hjá mér, en það hefur verið í rauninni lélegt samband á hverjum degi. Þið getið þá líka hringt í danska númerið : 0045-60617065 eða sent mér e-mail.

Hafið það öll gott og sjáumst bráðum :haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.09.2006 09:12:28 / vallih

Aftur komin helgi...

 ja hérna, það er aftur komin helgi. Ég er ekkert að kvarta þó. Í dag er líka 1. og þá fá auðvitað flestir útborgað, gaman, gaman :) Ég á eftir að fá útborgað fyrir þessa fáu tíma sem ég var að vinna hjá Stöð 2, ég ætla rétt að vona að ég fái útborgað þaðan í dag.

Ég keypt hjól í fyrradag og ég er ekkert smá lukkuleg með hjólið, ég á vísu aðeins eftir að laga það til að hæð minni, en ég er svo svakalega hávaxin miðað við danina ;) Ég reyni kannski að setja inn mynd hérna af hjólinu mínu, við tækifæri hehe

Þessa vika er búin að vera dál. sukk vika hjá mér, þá á ég við í sambandi við mataræðið. Það er gert af ásettu ráði, en ég ætla aðeins að "sjokkera" líkamann, en í sept., okt. og nóv. ætla ég að vera extra dugleg, eða bara svipað dugleg og ég var í vor. Sem sagt halda þeim lífstíl áfram. Eru einhverjir aðrir sem ætla að gera það með mér?

Á morgun (laugardag) ætlum við Linda í heimsókn til Karólínu systur Ólafar heitinnar, hún á heima rétt fyrir utan Kaupmannahöfn. Hún er búin að bjóða okkur í mat um kvöldið, það verður án efa mjög gaman og notalegt hjá okkur.


» 6 hafa sagt sína skoðun

30.08.2006 09:05:32 / vallih

Heimsókn

Í gær fórum við nokkur (5 manns) úr bekknum í heimsókn á Arkitektastofu staðsetta á Kongens Nytorv. Þetta var rosalega góð heimsókn og ég fékk dál.sjálfstraust við þessa heimsókn. Auðvitað er margt sem ég á eftir að læra en það var ansi margt sem ég hefði getað gert þarna á teiknistofunni.

Það er líka gaman að hugsa til þess að ég er að verða hálfnuð með námið á næstu dögum, það er mjög þægileg tilhugsun. Stundum finnst mér ég ekki búin að læra neitt, stundum finnst mér eins og ég geti gert næstum allt ;)

Ég læt þetta duga í bili, gangi ykkur öllum vel :D


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.08.2006 06:47:26 / vallih

Helgin

Helgin var mjög fín, en á föstudagskvöldið fórum við nokkur úr bekknum á skólabarinn. Við fengum okkur aðeins að borða á undan en síðan byrjaði fjörið á barnum. Við fórum bara snemma heim, eða kl.23 um kvöldið, ég var dál. þreytt daginn eftir þó, en þó alls ekki þunn!! Á laugardeginum var svo gott veður að við Valli kíktum í bæinn í um klukkutíma eftir hádegi, Valli keypti sér gamaldags videó svo að hann geti tekið upp alla badmintonleiki. Á laugardagskvöldið fórum við síðan í tívólíð, við fórum ekki í nein tæki, enda orðin svo svakalega gömul. Þannig að við eða Valli þ.e.a.s. fór bara í skotleiki!! Ég fór líka í eitt spil og vann alla aðra sem voru að spila og fékk því smá verðlaun :haha:  Um kl.22 ætluðum við á Hard Rock, en þar var u.þ.b. klukkutíma bið eftir sæti, þannig að við ákváðum að fara annað og enduðum á stað sem er mjög svipaður og Hard Rock. Þar var mjög góður matur og við gjörsamlega sprengdum okkur og löbbuðum hálf-ólétt út.

Sunnudagurinn kom og fór, en við gerðum ekkert sérstakt þá. Í gær kláraði ég síðan þetta leiðinlega próf og eftir það byrjaði skólinn fyrir alvöru. En við fengum afhent verkefnið fyrir önnina og hópavinnan byrjaði. Það er gott að vera byrjuð á fullu aftur, því þessar undanfarnar 3 vikur hafa verið frekar rólegar og það hefur líka verið leiðinlegt að vera að vinna ein. Þannig að ég er bara happy í dag.

Gangi ykkur vel og hafið það gott allir saman :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.08.2006 14:14:32 / vallih

Það er komin helgi

Jebb, það er komin helgi aftur og það er margt búið að gerast í þessari viku. Nýja litla sæta frænka mín er mér efst í huga, en mér finnst dál. leiðinilegt að ná ekki að sjá hana almennilega, en ég fer vonandi fljótlega til Íslands til að hitta hana og alla aðra. Ég sakna auðvitað allra alveg roslega, en núna skilst mér að flestir séu að byrja að vinna eða byrjaðir í skóla og því flestir að detta inn í sína daglegu rútínu sem er náttl. bara fínt.

Sambúðin hjá mér og Valla gengur ágætlega, við höfum verið dugleg að fara og gera eitthvað saman, við stefnum á að fara í tívólið annað kvöld, en ég hef aldrei verið í því að kvöldi til en það er víst æðislegt.

Ég er ennþá í skólanum, en ég er búin að vera undirbúa próf sem við erum að fara í á mánudaginn. Síðan erum við nokkur að fara á skólabarinn rétt á eftir og aðeins að slaka á eftir erfiðan dag.

Eigið öll góða helgi og hafið það gott.

Ég ætla benda aftur á heimsíðu systranna Þormóðsdætra, en það eru komnar inn nýjar myndir af litlu skvísunni:  http://barnaland.is/barn/22229/


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.08.2006 20:57:22 / vallih

Myndir

Jæja, fyrstu myndirnar af nýju dömunni eru inn á barnalandi hjá Auði Rós, endilega kíkið:

http://barnaland.is/barn/22229/

Hún er bara yndisleg og ég get ekki beðið eftir að fá að halda á henni og kynnast henni, hún er örugglega mikill persónuleiki eins og systir og frændsystkini sín.

Gangi þér vel í prófinu á morgun Auður.

Hafið það gott og gaman í dag. Lífið er svo gott :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11